Fréttir

true

Heimildarmyndin Heimaleikurinn frumsýnd um helgina

Heimildarmyndin Heimaleikurinn verður frumsýnd í Bíó Paradís í Reykjavík laugardaginn 16. september næstkomandi, en myndin á rætur sínar að rekja til Hellissands. Heimaleikurinn er gamansöm íþróttaheimildarmynd um tilraun manns til að uppfylla draum föður síns. Draumurinn er að safna í lið heimamanna til að spila langþráðan vígsluleik á fótboltavelli sem faðirinn lét gera á Hellissandi…Lesa meira

true

Stórtap hjá Skallagrími í lokaleiknum

KH og Skallagrímur mættust í lokaumferð 4. deildar karla í knattspyrnu síðasta fimmtudag og var leikurinn á Valsvelli við Hlíðarenda. Magnús Óliver Axelsson kom KH yfir á sjöttu mínútu með marki úr vítaspyrnu og Haukur Ásberg Hilmarsson bætti síðan við tveimur mörkum fyrir Hlíðarendapilta. Sölvi Snorrason minnkaði muninn fyrir gestina á 26. mínútu áður en…Lesa meira

true

Kartöfluhátíð á Byggðasafninu í Görðum

Byggðasafnið í Görðum á Akranesi býður bæjarbúum í annað sinn á árlega Kartöfluhátíð laugardaginn 16. september næstkomandi í Stúkuhúsinu á Safnasvæðinu klukkan 14. Hildur Hákonardóttir rithöfundur heldur fyrirlestur. Árið 2008 gaf hún út bókina Blálandsdrottningin og fólkið sem ræktar kartöflur: Saga kartöflunnar og kartöfluræktar gegnum aldirnar. Akranes var lengi eitt ræktarlegasta kauptún landsins og Akraneskartöflurnar…Lesa meira

true

Há grunnvatnsstaða talin vera vegna mikillar úrkomu fyrri hluta árs

Í gangi hefur verið að beiðni Akraneskaupstaðar könnun á jarð- og grunnvatnsaðstæðum á Neðri Skaga eftir að ábendingar bárust um hátt grunnvatnsyfirborð á svæðinu. Fram kemur á vef Akraneskaupstaðar að framkvæmd könnunar hefur verið í höndum verkfræðistofunnar Verkís. Fyrstu niðurstöður benda til þess að með tilliti til þeirra gagna sem aflað hefur verið í sumar, rannsókna…Lesa meira

true

Smíðar veiðihnífa frá grunni

Það leynast víða lunknir handverksmenn í Snæfellsbæ. Einn þeirra er Heimir Þór Ívarsson sem stundar sjómennsku að aðalstarfi og er bryti á vertíðarbátnum Ólafi Bjarnasyni SH. Heimir stundar gæsaveiðar á haustin og er nær eingöngu í Skagafirði við veiðar á heiðagæs, en að hans sögn er mest af heiðagæs á þeim slóðum. „Ég fer með…Lesa meira

true

Kynning um sundmenningu Íslendinga í Safnahúsi Borgarbyggðar á morgun

Á morgun, fimmtudaginn 14. september kl 17:00, fer fram kynning á verkefni um sundlaugamenningu Íslendinga í Safnahúsi Borgarbyggðar. Nýverið hófst skráning á sundlaugamenningu Íslendinga á vefnum Lifandi hefðir en þar er haldið utan um óáþreifanlegan menningararf Íslendinga. ,,Í tilefni af því verða viðburðir um allt land tengdir sundhefðinni þar sem unnendum sundsins er boðið að…Lesa meira

true

Ný þungarokkshátíð kynnt til leiks í Stykkishólmi

Þungarokkshátíðin Sátan mun fara fram í fyrsta sinn næsta sumar en hátíðin verður haldin í Stykkishólmi dagana 6.-8. júní 2024. Gísli Sigmundsson þungarokkari er forsprakki hátíðarinnar en hann segir í samtali við Vísi að reynt fólk komi að undirbúningnum. Hann segir þungarokks senuna sterka hér á landi og mikinn áhuga ríkja fyrir slíkum hátíðum. Dóttir…Lesa meira

true

Auka við reksturinn og bæta Sýslumannssetrinu við

Rætt við Svövu og Unnstein í Blómasetrinu Kaffi Kyrrð í Borgarnesi Hjónin Svava Víglundsdóttir og Unnsteinn Arason í Borgarfirði hafa um árabil rekið Blómasetrið Kaffi Kyrrð við Skúlagötu 13 í Borgarnesi auk þess að bjóða ferðafólki upp á gistingu í fjórum húsum. Óhætt er að segja að kaffihúsið þeirra hafi slegið í gegn og hefur…Lesa meira

true

Askja fer á hraðstefnumót við landsbyggðina

Hraðstefnumót bílaumboðsins Öskju hefst í dag og lýkur eftir tíu daga. Á stefnumótinu eru sýndir valdir bílar frá Mercedes-Benz, Kia, Honda sem freista þess að finna verðuga lífsförunauta á landsbyggðinni,“ segir í tilkynningu. Fyrsta Hraðstefnumótið verður haldið í Vestmannaeyjum í dag en bílarnir munu í kjölfarið heimsækja Höfn, Egilsstaði, Reyðarfjörð, Akureyri, Sauðárkrók, Ísafjörð og enda…Lesa meira