
Krakkarnir voru hörkuduglegir og fylltu kartöflugarðinn á innan við klukkutíma. Síðan stráðu þau blákorni yfir. Ljósm. akranes.is
Kartöfluhátíð á Byggðasafninu í Görðum
Byggðasafnið í Görðum á Akranesi býður bæjarbúum í annað sinn á árlega Kartöfluhátíð laugardaginn 16. september næstkomandi í Stúkuhúsinu á Safnasvæðinu klukkan 14. Hildur Hákonardóttir rithöfundur heldur fyrirlestur. Árið 2008 gaf hún út bókina Blálandsdrottningin og fólkið sem ræktar kartöflur: Saga kartöflunnar og kartöfluræktar gegnum aldirnar. Akranes var lengi eitt ræktarlegasta kauptún landsins og Akraneskartöflurnar þóttu einstaklega góðar matkartöflur og urðu landsfrægar fyrir gæðin. Þá var Akranes lengi þekkt fyrir K-in þrjú: Knattspyrnu, konur og kartöflur.