Fréttir

true

Fulltrúar Akraneskaupstaðar á Farsældarþingi

Alls tóku yfir 1.100 manns þátt í Farsældarþingi sem mennta- og barnamálaráðuneytið stóð fyrir í Hörpu síðasta mánudag. Á þinginu fór fram víðtækt samtal fagfólks, þjónustuveitenda, stjórnvalda, barna og aðstandenda um farsæld barna og er þingið mikilvægur liður í stefnumótun og áætlanagerð þegar kemur að innleiðingu laga um farsæld barna. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og…Lesa meira

true

Djúpstæður siðferðisvandi grefur undan trausti í samfélaginu

„Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) telur samráð Eimskips og Samskipa eins og því er lýst í málsgögnum Samkeppniseftirlitsins til marks um sjúklegt hugarfar spillingar og græðgi. Algjört virðingarleysi stjórnenda þessara fyrirtækja fyrir samkeppnislögum og hagsmunum almennings er enn ein staðfesting þess að íslenskt viðskipta- og fjármálalíf glímir við djúpstæðan siðferðisvanda sem stöðugt grefur undan trausti í…Lesa meira

true

Nýr dómsmálaráðherra kynnti sér starfsemina á Vesturlandi

Guðrún Hafsteinsdóttir tók í sumar við embætti dómsmálaráðherra af Jóni Gunnarssyni. Nýlega heimsótti hún stofnanir dómsmálaráðuneytisins á Vesturlandi, nánar til tekið lögreglustjóra, sýslumann og héraðsdóm. Ráðherra staldraði við á hverjum stað og kynnti sér starfsaðstöðu og helstu verkefni hvers embættis. Umræður áttu sér síðan stað um þær áskoranir og þau tækifæri sem fram undan eru…Lesa meira

true

Skagakonur með styrktarleik fyrir lið Einherja

Kvennalið ÍA í knattspyrnu leikur í kvöld sinn síðasta heimaleik á tímabilinu þegar ÍA og Smári eigast við í Akraneshöllinni klukkan 19.15 og er um afar mikilvægan leik að ræða því lið ÍA er í hörku baráttu um að komast upp í Lengjudeildina á næsta tímabili. Í yfirlýsingu frá Knattspyrnufélagi ÍA kemur fram að leikurinn…Lesa meira

true

Grenndarstöðvar settar upp í Borgarbyggð

Á allra næstu dögum verður búið að koma fyrir þeim þremur grenndarstöðvum fyrir málm, textíl og gler sem samþykktar voru á fundi umhverfis- og landbúnaðarnefndar Borgarbyggðar 24. apríl síðastliðinn. Þar kom einnig fram að hafin verði vinna við að koma stærri grenndarstöð fyrir framan núverandi gámastöð á Sólbakka og og að á Bifröst verði áfram…Lesa meira

true

Enn kviknar í rafhlaupahjólum í hleðslu innandyra

Í gær fór Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu í tvö útköll þar sem eldur hafði komið upp í rafhlaupahjólum í hleðslu. Fyrr á þessu ári brann einbýlishús í Reykjavík. Ástæður allra þessara bruna, og fjölmargra fleiri, hefur verið rakin til hleðslu hlaupahjóla innan dyra. Bjarni Kr Þorsteinsson varaslökkviliðsstjóri Borgarbyggðar segir að töluvert hafi verið um að kviknað…Lesa meira

true

Breyting á útivistartími barna og unglinga

Í byrjun september breyttist útivistartími barna og unglinga yfir í vetrartíma sem er frá 1. september til 1. maí. Börn 12 ára og yngri mega lengst vera úti til klukkan 20. Börn 13 til 16 ára mega lengst vera úti til klukkan 22. Aldursmörk miðast við fæðingarár en ekki fæðingardag sem þýðir að 1. janúar…Lesa meira

true

Starfsfólk FVA fór í fjallgönguferð

Í áreiti hversdagsins er svo hollt og gott að kúpla sig aðeins út, helst vera netlaus og jafnvel símasambandslaus í nokkra daga og bara njóta náttúrunnar í góðum félagsskap. Heilsueflingarteymi Fjölbrautaskóla Vesturlands hefur því undanfarin þrjú ár staðið fyrir sumarferð starfsfólks skólans á skemmtilegar gönguslóðir. Tvisvar hefur leiðin legið á Hornstrandir (Hlöðuvík 2021 og Reykjarfjörð…Lesa meira

true

Sigurðar Þórólfssonar minnst

Sigurður Þórólfsson fæddist í Innri-Fagradal í Dölum 11. nóvember 1932. Hann lést á Silfurtúni í Búðardal sunnudaginn 20. ágúst 2023. Sigurður kvæntist 11. júní 1962 eftirlifandi eiginkonu sinni, Erlu Karlsdóttur frá Kollsá í Hrútafirði, f. 24. júní 1939. Synir þeirra eru Þórólfur, Karl, Ingimar og Guðjón Torfi. Sigurður var alla sína starfsævi bóndi í Innri-Fagradal.…Lesa meira

true

Greta María í yfirheyrslu vikunnar

“Ég sakna mest þegar ég var ung, bjartsýn og áhyggjulaus,” segir Greta María Árnadóttir í Stykkishólmi sem er gestur í yfirheyrslu vikunnar í Skessuhorni að þessu sinni: Nafn: Greta María Árnadóttir Hvar ertu fædd og hvenær? Ég fæddist á Landspítalanum á jóladag árið 1985, við bjuggum þá á Leifsgötu í Reykjavík. Hvernig myndir þú lýsa…Lesa meira