Frá vinstri: Ívar Orri Kristjánsson, Aldís Ingibjörg, Davíð Logi og Sigurður. Ljósm. akranes.is

Fulltrúar Akraneskaupstaðar á Farsældarþingi

Alls tóku yfir 1.100 manns þátt í Farsældarþingi sem mennta- og barnamálaráðuneytið stóð fyrir í Hörpu síðasta mánudag. Á þinginu fór fram víðtækt samtal fagfólks, þjónustuveitenda, stjórnvalda, barna og aðstandenda um farsæld barna og er þingið mikilvægur liður í stefnumótun og áætlanagerð þegar kemur að innleiðingu laga um farsæld barna. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra opnaði þingið og kynnti nýjan vef og mælaborð um farsæld barna.

Fulltrúar Akraneskaupstaðar á Farsældarþingi - Skessuhorn