Höfnin á Grundartanga. Inn- og útflutningur um hana var hluti af því sem skipafélögin sömdu um sín á milli í meintu ólöglegu samráði. Ljósm. mm

Djúpstæður siðferðisvandi grefur undan trausti í samfélaginu

„Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) telur samráð Eimskips og Samskipa eins og því er lýst í málsgögnum Samkeppniseftirlitsins til marks um sjúklegt hugarfar spillingar og græðgi. Algjört virðingarleysi stjórnenda þessara fyrirtækja fyrir samkeppnislögum og hagsmunum almennings er enn ein staðfesting þess að íslenskt viðskipta- og fjármálalíf glímir við djúpstæðan siðferðisvanda sem stöðugt grefur undan trausti í samfélaginu,“ segir í ályktun sem miðstjórn Alþýðusambands Íslands var að samþykkja.

Djúpstæður siðferðisvandi grefur undan trausti í samfélaginu - Skessuhorn