
Starfsfólk sýslumannsins á Vesturlandi í höfuðstöðvunum í Stykkishólmi. Ljósm. Stjórnarráðið
Nýr dómsmálaráðherra kynnti sér starfsemina á Vesturlandi
Guðrún Hafsteinsdóttir tók í sumar við embætti dómsmálaráðherra af Jóni Gunnarssyni. Nýlega heimsótti hún stofnanir dómsmálaráðuneytisins á Vesturlandi, nánar til tekið lögreglustjóra, sýslumann og héraðsdóm. Ráðherra staldraði við á hverjum stað og kynnti sér starfsaðstöðu og helstu verkefni hvers embættis. Umræður áttu sér síðan stað um þær áskoranir og þau tækifæri sem fram undan eru í starfi lögreglu, dómstóla og sýslumanna.