Fréttir

true

Óvenjulegt skýjafar, skruggur og þrumuveður

Mánudaginn 7. ágúst síðastliðinn var fremur óvenjulegt veður um vestanvert landið. Framan af degi var víða mjög hlýtt í veðri en þegar kom fram yfir miðjan dag fóru dökkir skýjabakkar að hrannast upp á himni. Síðdegis voru svo eldingar og þrumuveður og þeim fylgdi úrhellisrigning. Jafnan verða frekar eldingar inn til landsins þar sem meiri…Lesa meira

true

Íslandsmót í hrútadómum um næstu helgi

Árlegt Íslandsmeistaramót í hrútadómum verður haldið á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum sunnudaginn 20. ágúst og hefst kl. 14. Á þessu ári eru liðin 20 ár síðan Strandamenn fundu upp þessa skringilegu keppnisgrein og verður því mikið um dýrðir. „Undirbúningur fyrir helgina gengur vel. Það er alltaf góð þátttaka í hrútadómunum, en keppt er í…Lesa meira

true

Skagamenn vinna hálfa fimmtu milljón í tippinu

Þeir eru kampakátir Skagamennirnir sem taka þátt í húskerfi ÍA Íslenskra getrauna eftir leiki helgarinnar í enska boltanum. Þeir byrja tímabilið frábærlega og fengu 13 rétta á enska getraunaseðilinn síðastliðinn laugardag. Vinningsupphæðin er um 4,5 milljónir króna. „Við festum leik 1 og leik 13 og spáðum því að Newcastle og WBA myndu vinna sína leiki…Lesa meira

true

Svekkjandi jafntefli hjá Kára

Kári og KFS áttust við í 3. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn í Akraneshöllinni. Guðfinnur Þór Leósson kom Kára yfir strax á þriðju mínútu þegar hann fékk boltann í teignum eftir fyrirgjöf og setti boltann í netið. Gestirnir sem voru skipulagðir í leik sínum jöfnuðu á 15. mínútu með marki frá…Lesa meira

true

Víkingur missti af tveimur stigum í toppbaráttunni

Víkingur Ólafsvík og KFG áttust við í toppbaráttu 2. deildar karla í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn í Ólafsvík. Fyrir leik voru bæði lið með 26 stig í efri hlutanum en Víkingur hafði tapað síðustu þremur leikjum sínum í deildinni og þurfti nauðsynlega sigur til að koma sér aftur á beinu brautina. Þetta leit…Lesa meira

true

Skagamenn með mikilvægan sigur á Fjölni

Það var mikið í húfi fyrir leik Fjölnis og ÍA í Lengjudeild karla í knattspyrnu þegar liðin mættust í 16. umferð deildarinnar á föstudagskvöldið. Heimamenn í Fjölni sátu í þriðja sætinu með 29 stig á meðan Skagamenn voru í öðru með 30 stig. Afturelding hafði misstigið sig kvöldið áður og tapað á móti Grindavík en…Lesa meira

true

Þjóðbúningaþing var haldið í Reykholti

Dagana 8.-12. ágúst var haldið Norrænt þjóðbúningaþing í Reykholti í Borgarfirði.  Setning þingsins fór fram í Þjóðminjasafni Íslands á þriðjudag þar sem Harpa Þórsdóttir þjóðminjavörður og Lilja Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra fluttu ávörp. Að setningu lokinni héldu þátttakendur, sem voru ríflega fimmtíu talsins frá Íslandi, Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi, Færeyjum og Grænlandi sem leið lá í Reykholt…Lesa meira

true

Beint frá býli dagurinn er á sunnudaginn

Víða hér á landi má finna bændamarkaði, bæði í dreifbýli og þéttbýli. Sumir þeirra eru aðeins starfræktir á sumrin, en aðrir árið um kring. Vesturland er þar engin undantekning og víða um landshlutann má nálgast vörur með yfirheitinu Beint frá býli. Þar er um ákveðna gæðavottun að ræða en starfsemi þessara búa fellur undir íslenskar…Lesa meira

true

Mannaþefur í helli mínum – Sumarmót sagnaþula

Laugardaginn 19. ágúst næstkomandi verður sumarmót sagnaþula haldið í Rifi og á Hellissandi á Snæfellsnesi og er heiti viðburðarins Mannaþefur í helli mínum. Skipuleggjendur eru Félag sagnaþula, Sögustofan í Grundarfirði og Sagnaseiður á Snæfellsnesi. Mannaþefur í helli mínum er dagskrá fyrir alla sem elska að hlusta á góða sögu og þá sem hafa áhuga á…Lesa meira

true

Stálu tjaldi og vindsæng en skildu eftir þrjá tjaldhæla

„Ég fór í Baulárvallavatn á Snæfellsnesi í dag, ætlaði að gista í tjaldi í nótt, en tjaldinu mínu var rænt ásamt vindsænginni,“ sagði Hjálmar Örn Erlingsson sem lenti í óskemmtilegri reynslu í gær við vatnið. „Það voru tveir erlendir menn á silfurlituðum Dacia Duster með einhverju kringlóttu fyrirtækja lógói. Ég spjallaði við þá þegar ég…Lesa meira