Beint frá býli dagurinn er á sunnudaginn

Víða hér á landi má finna bændamarkaði, bæði í dreifbýli og þéttbýli. Sumir þeirra eru aðeins starfræktir á sumrin, en aðrir árið um kring. Vesturland er þar engin undantekning og víða um landshlutann má nálgast vörur með yfirheitinu Beint frá býli. Þar er um ákveðna gæðavottun að ræða en starfsemi þessara búa fellur undir íslenskar kröfur um gæði, rekstur og eftirlit. Sunnudaginn 20. ágúst næstkomandi mun félagsskapurinn Beint frá býli halda upp á 15 ára afmæli félagsins með pompi og prakt á nokkrum stöðum á landinu. Hér á Vesturlandi verður viðburðurinn haldinn á Háafelli í Hvítársíðu af ábúendum en í samstarfi við fleiri söluaðila Beint frá býli.

Beint frá býli dagurinn er á sunnudaginn - Skessuhorn