
Þátttakendur stilltu sér upp til myndatöku á kirkjutröppunum í Reykholti. Ljósm. Heimir Hoffritz.
Þjóðbúningaþing var haldið í Reykholti
Dagana 8.-12. ágúst var haldið Norrænt þjóðbúningaþing í Reykholti í Borgarfirði. Setning þingsins fór fram í Þjóðminjasafni Íslands á þriðjudag þar sem Harpa Þórsdóttir þjóðminjavörður og Lilja Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra fluttu ávörp. Að setningu lokinni héldu þátttakendur, sem voru ríflega fimmtíu talsins frá Íslandi, Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi, Færeyjum og Grænlandi sem leið lá í Reykholt með viðkomu á þjóðbúningasýningu sem nú stendur yfir í Safnahúsi Borgarfjarðar.