
Íslandsmót í hrútadómum um næstu helgi
Árlegt Íslandsmeistaramót í hrútadómum verður haldið á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum sunnudaginn 20. ágúst og hefst kl. 14. Á þessu ári eru liðin 20 ár síðan Strandamenn fundu upp þessa skringilegu keppnisgrein og verður því mikið um dýrðir.