Fréttir

true

Vilja að þing verði umsvifalaust kallað saman

Þingflokksformenn allra stjórnarandstöðuflokka á Alþingi hafa farið fram á það að þing verði kallað saman. Í tilkynningu frá þeim segir: „Með vísan í 2. mgr. 23. greinar stjórnarskrárinnar hafa þingflokksformenn þingflokka stjórnarandstöðu á Alþingi óskað eftir því við forsætisráðherra að hann geri tillögu til forseta Íslands þess efnis að þing verði kallað saman til að…Lesa meira

true

Sameiginlegt markaðsátak sjávarútvegsins gagnvart ferðamönnum

Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki hafa tekið höndum saman um að markaðssetja íslenskt sjávarfang til erlendra ferðamanna hér á landi í þeim tilgangi að auka neyslu þeirra á sjávarafurðum á meðan á dvöl þeirra stendur. Herferðin kallast, „Icelandic Nature – It Goes Great With Fish.“ Í auglýsingum sem beint er að ferðamönnum er boðið upp á einstaka matarpörun;…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður fær 4,5 milljóna króna styrk vegna Langasands

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur veitt Akraneskaupstað styrk úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða að upphæð 4,5 milljónir króna, vegna verkefnisins „Aðgengi á Langasand.“ Þetta kemur fram á vef kaupstaðarins. Alls fengu 28 verkefni styrk úr framkvæmdasjóðinum í ár fyrir samtals 550 milljónir króna. „Markmið Akraneskaupstaðar með umsókninni er að bæta aðgengi fyrir öll að Langasandi og styðja við…Lesa meira

true

Bætt aðgengi að fjörum á Akranesi

Í íbúakosningu sem fram fór í vor á vefsíðunni Okkar Akranes undir liðnum „Opin og græn svæði“ kom fram mikill áhugi bæjarbúa á að lagfært verði aðgengi að fjörum m.a. að Krókalóni, Lambhúsasundi og út að Gamla vita á Breið. „Það er því sönn ánægja að upplýsa að búið er að bæta verulega úr aðgengi…Lesa meira

true

Vegagerðin hefur keypt nýja Breiðafjarðarferju

Norska ferjan Röst tekur við ferjusiglingum á Breiðafirði í haust Vegagerðin hefur samið við Torghatten Nord AS í Noregi um kaup á ferjunni Röst. Skipið tekur að óbreyttu við ferjusiglingum á Breiðafirði í haust og leysir þar með ferjuna Baldur af hólmi. Kaupin koma í kjölfar útboðs síðastliðið haust þar sem einungis fékkst eitt tilboð, frá…Lesa meira

true

Lax í tugatali beið uppgöngu í Glanna

Meðfylgjandi mynd var tekin í góðviðrinu í gær við fossinn Glanna í Norðurá. Vatnsstaðan er ágæt í ánni um þessar mundir og má þakka það miklum rigningum fram undir þetta. Þegar staðið er á útsýnispallinum við fossinn er á svona björtum dögum hægt að sjá laxinn sem bíður færis að reyna uppgöngu í fossinum eða…Lesa meira

true

Naumt tap hjá Skallagrími

Karlalið Skallagríms tapaði naumlega gegn knattspyrnufélaginu Hlíðarenda (KH), 2:3 í leik sem spilaður var á Borgarnesvelli í gærkvöldi. Fyrir leikinn var KH þremur stigum ofar í stigatöflunni en Skallagrímur var í áttunda sæti. Því var leikurinn mikilvægur báðum liðum til að spyrna sér úr botnbaráttunni. Gestirnir frá KH byrjuðu betur í leiknum og náðu forystunni…Lesa meira

true

Málþing í lok næsta mánaðar í tilefni LXXX afmælis Bjarna

Í tilefni þess að 18. ágúst næstkomandi fagnar prófessor Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri LXXX afmæli hefur Landbúnaðarsafn Íslands ákveðið að standa fyrir málþingi á Hvanneyri í samvinnu við Landbúnaðarháskóla Íslands. Mun málþingið fara fram fimmtudaginn 31. ágúst klukkan 13:00. Þar verður fjallað um hvernig hægt er að miðla landbúnaðartengdum fróðleik í gegnum safn og skóla…Lesa meira

true

Telja auknar líkur á að jarðskjálftahrina endi með eldgosi

Jörð heldur áfram að skjálfa á Reykjanesi og telja vísindamenn auknar líkur á að fari að gjósa á svæðinu milli Fagradalsfjalls og Keilis. Um fimm þúsund skjálftar hafa mælst síðan óróinn hófst og nú laust fyrir klukkan 10 í morgun varð skjálfti sem var tæplega 5 stig og fannst hann vel um sunnanvert Vesturland. Á…Lesa meira

true

Þyrlan sótti sjúkling að Vegamótum

Í hádeginu í gær var óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar til að sækja sjúkling á Snæfellsnes og flytja á sjúkrahús í Reykjavík. Um var að ræða skipverja af báti sem veikst hafði um borð. Var þyrlunni flogið til móts við sjúkraflutningabíl frá Grundarfirði og lenti hún á þjóðveginum við Vegamót í Eyja- og Miklaholtshreppi. Loka þurfti…Lesa meira