
Svipmynd af vellinum í Borgarnesi. Ljósm. úr safni.
Naumt tap hjá Skallagrími
Karlalið Skallagríms tapaði naumlega gegn knattspyrnufélaginu Hlíðarenda (KH), 2:3 í leik sem spilaður var á Borgarnesvelli í gærkvöldi. Fyrir leikinn var KH þremur stigum ofar í stigatöflunni en Skallagrímur var í áttunda sæti. Því var leikurinn mikilvægur báðum liðum til að spyrna sér úr botnbaráttunni.