
Neðan við stigann að Krókalóni hefur verið bætt við tveimur þrepum. Hér stendur Jón Arnar Sverrisson garðyrkjustjóri í fjöruborðinu. Ljósm. Akraneskaupstaður.
Bætt aðgengi að fjörum á Akranesi
Í íbúakosningu sem fram fór í vor á vefsíðunni Okkar Akranes undir liðnum „Opin og græn svæði“ kom fram mikill áhugi bæjarbúa á að lagfært verði aðgengi að fjörum m.a. að Krókalóni, Lambhúsasundi og út að Gamla vita á Breið. „Það er því sönn ánægja að upplýsa að búið er að bæta verulega úr aðgengi að fjörum eins og meðfylgjandi myndir sýna,“ segir í tilkynningu frá skipulags- og umhverfissviði bæjarins.