Telja auknar líkur á að jarðskjálftahrina endi með eldgosi

Jörð heldur áfram að skjálfa á Reykjanesi og telja vísindamenn auknar líkur á að fari að gjósa á svæðinu milli Fagradalsfjalls og Keilis. Um fimm þúsund skjálftar hafa mælst síðan óróinn hófst og nú laust fyrir klukkan 10 í morgun varð skjálfti sem var tæplega 5 stig og fannst hann vel um sunnanvert Vesturland.

Á mynd sem birt var í gær á vef Veðurstofunnar er sýnd svokölluð bylgjuvíxlmynd (COSMO-SkyMed) sem spannar tímabilið frá 28. júní til 6. Júlí. Myndir sýnir vel aflögun vegna kvikuinnskotsins við Fagradalsfjall. Endurtekið litamynstrið gefur til kynna hversu mikil færsla mælist í stefnu að gervitunglinu (Line of sight). Tvö hringlaga merki frá norðvestri til suðausturs sýna vel aflögun vegna kvikuinskotsins sem hófst 4. júlí og er um miðja vegu mill Fagradalsfjalls og Keilis. Mesta aflögun sem mælist vegna innskotsins eru allt að 18 cm norðvestan við innskotið. „Þó aflögunarmerkið sjáist víða um vestanvert Reykjanesið er kvikuinnskotið afmarkað við lítið svæði milli Fagradalsfjalls og Keilis. Myndin sýnir engin merki um kvikuhreyfingar annars staðar.“ Á nokkrum stöðum er eins og línur skeri í gegn um bylgjuvíxlmyndina. þessar línu eru færslur vegna stærri sjálfta sem sem hafa „triggerast“ vegna spennubreytinga sem innskotið veldur.

Telja auknar líkur á að jarðskjálftahrina endi með eldgosi - Skessuhorn