
Sameiginlegt markaðsátak sjávarútvegsins gagnvart ferðamönnum
Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki hafa tekið höndum saman um að markaðssetja íslenskt sjávarfang til erlendra ferðamanna hér á landi í þeim tilgangi að auka neyslu þeirra á sjávarafurðum á meðan á dvöl þeirra stendur. Herferðin kallast, „Icelandic Nature – It Goes Great With Fish.“ Í auglýsingum sem beint er að ferðamönnum er boðið upp á einstaka matarpörun; íslenskar náttúruperlur og gómsæta sjávarrétti úr íslenskum fiski.