Fréttir

true

Vegagerðin hefur keypt nýja Breiðafjarðarferju

Norska ferjan Röst tekur við ferjusiglingum á Breiðafirði í haust Vegagerðin hefur samið við Torghatten Nord AS í Noregi um kaup á ferjunni Röst. Skipið tekur að óbreyttu við ferjusiglingum á Breiðafirði í haust og leysir þar með ferjuna Baldur af hólmi. Kaupin koma í kjölfar útboðs síðastliðið haust þar sem einungis fékkst eitt tilboð, frá…Lesa meira

true

Lax í tugatali beið uppgöngu í Glanna

Meðfylgjandi mynd var tekin í góðviðrinu í gær við fossinn Glanna í Norðurá. Vatnsstaðan er ágæt í ánni um þessar mundir og má þakka það miklum rigningum fram undir þetta. Þegar staðið er á útsýnispallinum við fossinn er á svona björtum dögum hægt að sjá laxinn sem bíður færis að reyna uppgöngu í fossinum eða…Lesa meira

true

Naumt tap hjá Skallagrími

Karlalið Skallagríms tapaði naumlega gegn knattspyrnufélaginu Hlíðarenda (KH), 2:3 í leik sem spilaður var á Borgarnesvelli í gærkvöldi. Fyrir leikinn var KH þremur stigum ofar í stigatöflunni en Skallagrímur var í áttunda sæti. Því var leikurinn mikilvægur báðum liðum til að spyrna sér úr botnbaráttunni. Gestirnir frá KH byrjuðu betur í leiknum og náðu forystunni…Lesa meira

true

Málþing í lok næsta mánaðar í tilefni LXXX afmælis Bjarna

Í tilefni þess að 18. ágúst næstkomandi fagnar prófessor Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri LXXX afmæli hefur Landbúnaðarsafn Íslands ákveðið að standa fyrir málþingi á Hvanneyri í samvinnu við Landbúnaðarháskóla Íslands. Mun málþingið fara fram fimmtudaginn 31. ágúst klukkan 13:00. Þar verður fjallað um hvernig hægt er að miðla landbúnaðartengdum fróðleik í gegnum safn og skóla…Lesa meira

true

Telja auknar líkur á að jarðskjálftahrina endi með eldgosi

Jörð heldur áfram að skjálfa á Reykjanesi og telja vísindamenn auknar líkur á að fari að gjósa á svæðinu milli Fagradalsfjalls og Keilis. Um fimm þúsund skjálftar hafa mælst síðan óróinn hófst og nú laust fyrir klukkan 10 í morgun varð skjálfti sem var tæplega 5 stig og fannst hann vel um sunnanvert Vesturland. Á…Lesa meira

true

Þyrlan sótti sjúkling að Vegamótum

Í hádeginu í gær var óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar til að sækja sjúkling á Snæfellsnes og flytja á sjúkrahús í Reykjavík. Um var að ræða skipverja af báti sem veikst hafði um borð. Var þyrlunni flogið til móts við sjúkraflutningabíl frá Grundarfirði og lenti hún á þjóðveginum við Vegamót í Eyja- og Miklaholtshreppi. Loka þurfti…Lesa meira

true

Skýrsla um forgangsröðun vegaframkvæmda afhent innviðaráðherra og vegamálastjóra

Þriðjudaginn 4. júlí var nýsamþykkt skýrsla atvinnumálanefndar Dalabyggðar um forgangsröðun vegaframkvæmda í sveitarfélaginu afhent Sigurði Inga Jóhannssyni, innviðaráðherra og Bergþóru Þorkelsdóttur, vegamálastjóra. Þetta kemur fram á vef Dalabyggðar. Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri hitti vegamálastjóra í höfuðstöðvum Vegagerðarinnar í Suðurhrauni og afhenti henni forgangsröðunina. Pálmi Þór Sævarsson, svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Vestursvæði var með í gegnum fjarfundarbúnað.…Lesa meira

true

Una Torfa á sumartónleikum í Hallgrímskirkju á sunnudaginn

Næstu tónleikar í sumartónleikaröð Hallgrímskirkju í Saurbæ verða næstkomandi sunnudag, 9. júlí klukkan 16:00. Þar mun söngvaskáldið Una Torfa koma fram. Una er fædd árið 2000. Hún semur og spilar ljúfsár lög á íslensku um ástina og lífið og gaf hún út sína fyrstu plötu í júní á síðasta ári. Textar Unu eru fjölbreyttir og…Lesa meira

true

Mannlífið í Borgarnesi – myndir

Í gær, miðvikudaginn 5. júlí, fór blaðamaður Skessuhorns á stúfana og myndaði mannlífið í Borgarnesi. Dagurinn var fremur grár og kaldur og því ekki margir á ferli. Þegar komið var inn í fyrirtæki á svæðinu mátti þó sjá að bærinn iðaði af lífi og ferðamenn þar í ríkjandi hluta. Heimafólk var þó einnig að finna…Lesa meira

true

Áfram eykst umferð á Hringvegi

Aldrei áður hefur mælst meiri umferð á Hringvegi en í nýliðnum júní mánuði, segir á vef Vegagerðarinnar. Umferðin í júní í ár var 7,6% meiri en í júní 2022, er þessi aukning rúmlega tvisvar sinnum meiri en í meðalári en aldrei hafa mæst jafn mörg ökutæki á Hringveginum og í nýliðnum júnímánuði. Segir Vegagerðin ólíklegt…Lesa meira