Fréttir

true

Auglýst eftir umsóknum um jarðræktarstyrki í garðyrkju

Matvælaráðuneytið hefur opnað fyrir rafrænar umsóknir um jarðræktarstyrki í garðyrkju vegna útiræktunar á grænmeti, kartöflum og garðávöxtum til manneldis. Umsóknum skal skilað á vefinn Afurð.is fyrir 15. ágúst. Í tilkynningu frá matvælaráðuneytinu segir að til að geta sent inn umsókn í Afurð þurfi að liggja fyrir skýrsla í forritinu Jörð. Vakin er sérstök athygli á því að hægt…Lesa meira

true

Unnið er að sameiningu LMÍ, Ramý og Náttúrufræðistofnunar

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur á undanförnum mánuðum unnið að sameiningu þeirra stofnana sem heyra undir ráðuneytið. Kynnt hefur verið ákvörðun um að sameina tíu af stofnunum ráðuneytisins í þrjár og er vinna við gerð lagafrumvarpa vegna Náttúruverndar- og minjastofnunar (Vatnajökulsþjóðgarður, Þjóðgarðurinn á Þingvöllum, náttúruverndarsvið Umhverfisstofnunar og Minjastofnun) og Loftslagsstofnunar (Orkustofnun og Umhverfisstofnun) langt komin.…Lesa meira

true

Salernishúsum komið fyrir á Arnarstapa

Snæfellsbær hefur látið koma fyrir nýju salernishúsi á Arnarstapa. Að sögn Kristins Jónassonar bæjarstjóra er þetta gert til að mæta brýnni þörf og ekki síður til að draga úr áreiti á veitingastaði í þorpinu. Kristinn segir að umferð ferðafólks sé gríðarmikil um þessar mundir og þá daga þegar farþegar úr skemmtiferðaskipum bætast við í flóru…Lesa meira

true

Skagakonur hentu frá sér sigrinum á lokamínútunum

Það stefndi allt í öruggan sigur Skagakvenna, og þar með toppsætið í 2. deildinni, þegar Álftanes kom í heimsókn á Akranesvöll í gærkvöldi. Þegar komið var fram í uppbótartíma og Skagakonur leiddu í stöðunni 3:1 skoruðu gestirnir af Álftanesi tvívegis og náðu í óvænt stig og heimaliðið missti af tækifærinu að koma sér á topp…Lesa meira

true

Leikin þáttaröð um Vigdísi

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og Lilju D. Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, um að veita leikhópnum Vesturporti fimm milljóna króna styrk vegna framleiðslu á leikinni sjónvarpsþáttaröð um Vigdísi Finnbogadóttur. Þættirnir sem verða fjórir talsins munu fjalla um líf Vigdísar frá unglingsaldri og til þess heimsviðburðar þegar hún varð fyrst kvenna lýðræðislega kjörinn forseti.…Lesa meira

true

Sumarið lítur vel út hjá Sæferðum

Sæferðir í Stykkishólmi reka ferjuna Baldur sem siglir allt árið yfir Breiðafjörð til Brjánslækjar á Vestfjörðum með viðkomu í eyjunni Flatey. Hún er ein af náttúruperlum landsins og er byggðin þar alveg einstök. Í Flatey búa nokkrir einstaklingar allt árið um kring en á sumrin bætast við ferðamenn og eigendur sumarhúsa. Blaðamaður Skessuhorns kom við…Lesa meira

true

Ríður út án skeifna eftir námskeið um náttúrulega hófhirðu

Thelma Dögg Harðardóttir býr í Norðurárdal og er nemandi við hestafræðideild Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Thelma hefur stundað hestamennsku frá barnsaldri en í október síðastliðnum fór hún á námskeið hjá Louise Bach-Holler þar sem Thelma kynntist hugmyndinni um járnalausar útreiðar. Hin danska Louise býr á Spáni þar sem hún starfar við náttúrulega hófhirðu ásamt því…Lesa meira

true

Mikið stuð á Írskum dögum um helgina – MYNDASYRPA

Bæjarhátíðin Írskir dagar var haldin á Akranesi um síðustu helgi og var þetta í 24. skiptið sem hún er haldin. Þétt dagskrá var alla hátíðardagana og margt í boði fyrir alla fjölskylduna. Kolbrún Ingvarsdóttir ljósmyndari Skessuhorns var á ferðinni fyrir Skessuhorn um helgina og tók fullt af myndum en nokkrar þeirra birtast hér ásamt myndum…Lesa meira

true

Glerlistakonan Rabby opnar sýningu í Norska húsinu í Stykkishólmi

Rabby, sem fullu nafni heitir Hrafnhildur Ágústsdóttir, hefur síðustu 40 ár lengst af búið og starfað í Bandaríkjunum ásamt eiginmanni sínum Kristjáni Tómasi Ragnarssyni, lækni. Rabby útskrifaðist sem skurðhjúkrunarfræðingur frá Hjúkrunarskóla Íslands árið 1968 og vann um tíma sem slíkur bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum en þau hjónin fluttu frá Íslandi til New York…Lesa meira

true

Vegagerðin býður út rekstur Breiðafjarðarferjunnar Rastar

Vegagerðin hefur auglýst útboð í rekstur Breiðafjarðarferju 2023-2026. Sæferðir í Stykkishólmi hafa séð um rekstur Breiðafjarðarferjunnar Baldurs frá árinu 2001. Árið 2015 keypti Eimskip Sæferðir sem hélt þó áfram rekstri ferjunnar. Segir í útboði Vegagerðarinnar að bjóðandi skuli nota ferjuna m/s Röst sem sé í eigu Vegagerðarinnar. Samkvæmt upplýsingum Skessuhorns er Vegagerðin þó ekki að…Lesa meira