
Glerlistakonan Rabby á vinnustofu sinni. Ljósm. Úr einkasafni.
Glerlistakonan Rabby opnar sýningu í Norska húsinu í Stykkishólmi
Rabby, sem fullu nafni heitir Hrafnhildur Ágústsdóttir, hefur síðustu 40 ár lengst af búið og starfað í Bandaríkjunum ásamt eiginmanni sínum Kristjáni Tómasi Ragnarssyni, lækni. Rabby útskrifaðist sem skurðhjúkrunarfræðingur frá Hjúkrunarskóla Íslands árið 1968 og vann um tíma sem slíkur bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum en þau hjónin fluttu frá Íslandi til New York árið 1970. Í dag dvelja þau veturlangt í Arizona í Bandaríkjunum en frá árinu 2001 hafa þau hins vegar varið öllum sumrum að Hnausum á Snæfellsnesi, að undanskildu Covid-sumrinu 2020.