María og Nadine, starfsmenn Sæferða. Ljósm. vaks

Sumarið lítur vel út hjá Sæferðum

Sæferðir í Stykkishólmi reka ferjuna Baldur sem siglir allt árið yfir Breiðafjörð til Brjánslækjar á Vestfjörðum með viðkomu í eyjunni Flatey. Hún er ein af náttúruperlum landsins og er byggðin þar alveg einstök. Í Flatey búa nokkrir einstaklingar allt árið um kring en á sumrin bætast við ferðamenn og eigendur sumarhúsa. Blaðamaður Skessuhorns kom við á dögunum á skrifstofu Sæferða sem er staðsett niður við höfnina við Smiðjustíg og hitti þar á þær Maríu Ölmu Valdimarsdóttur afgreiðslustjóra og Nadine E. Walter markaðsstjóra. Þær segja að sumarið í ár í bókunum líti mjög vel út og það hefur verið þétt setið yfirleitt í ferðum sumarsins hingað til.

Sumarið lítur vel út hjá Sæferðum - Skessuhorn