Varla var hægt að fóta sig fyrir ferðamanninum sem sótti sýningar Landnámssetursins ásamt því að borða góðan mat og kaupa íslenska smámuni sem til sölu eru á staðnum. Ljósm. sþ

Mannlífið í Borgarnesi – myndir

Í gær, miðvikudaginn 5. júlí, fór blaðamaður Skessuhorns á stúfana og myndaði mannlífið í Borgarnesi. Dagurinn var fremur grár og kaldur og því ekki margir á ferli. Þegar komið var inn í fyrirtæki á svæðinu mátti þó sjá að bærinn iðaði af lífi og ferðamenn þar í ríkjandi hluta. Heimafólk var þó einnig að finna á götum bæjarins en blaðamaður smellti nokkrum myndum af hversdagslífinu í bænum.

Mannlífið í Borgarnesi - myndir - Skessuhorn