
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri, Garðar Freyr Vilhjálmsson formaður atvinnumálanefndar Dalabyggðar, Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra, Guðlaug Kristinsdóttir formaður umhverfis- og skipulagsnefndar Dalabyggðar og Stefán Vagn Stefánsson fyrsti þingmaður Norðvesturkjördæmis.
Skýrsla um forgangsröðun vegaframkvæmda afhent innviðaráðherra og vegamálastjóra
Þriðjudaginn 4. júlí var nýsamþykkt skýrsla atvinnumálanefndar Dalabyggðar um forgangsröðun vegaframkvæmda í sveitarfélaginu afhent Sigurði Inga Jóhannssyni, innviðaráðherra og Bergþóru Þorkelsdóttur, vegamálastjóra. Þetta kemur fram á vef Dalabyggðar.