Fréttir

true

„Við viljum taka þátt í að byggja upp samfélagið“

Ingibjörg Þóranna Steinudóttir flutti að Rauðbarðaholti í Hvamssveit fyrir um tveimur árum. Hún býr þar með manni sínum Einari Erlingssyni, sem uppalinn er í Rauðbarðaholti, og tveimur dætrum, þeim Auði og Freyju. Árið 2018 ákváðu Ingibjörg og Einar að kaupa gamla húsið á jörðinni, gera það upp og nota sem sumarhús en móðir Einars býr…Lesa meira

true

LS hefur óskað eftir 40% aukningu strandveiðikvótans

Landssamband smábátaeigenda óskaði með bréfi til Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra 25. júní síðastliðinn eftir því að ráðherra komi í veg fyrir stöðvun strandveiða. Að óbreyttu gætu veiðarnar stöðvast um eða eftir 10. júlí nk. Óskað er eftir því að ráðherra hækki aflaviðmið um 40%, eða um 4.000 tonn, og tryggi með því jafnræði milli landshluta. „Það…Lesa meira

true

Tóku upp stuttmynd í Borgarfirði

Tökur á stuttmyndinni Anima fóru fram í Borgarfirði í síðustu viku en verkefnið er hugarfóstur Borgnesingsins Hönnu Ágústu Olgeirsdóttur sem framleiðir, semur og leikstýrir myndinni. Hanna Ágústa lærði leikstjórn samhliða klassískum söng í Þýskalandi og langaði þess vegna að skapa sér verkefni til að spreyta sig í faginu en stuttmyndin hlaut einn hæsta styrkinn á…Lesa meira

true

Kári vann nauman en góðan sigur á Árbæ

Lið Kára og Árbæjar tókust á í 3. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi fyrir framan nánast fulla stúku í Akraneshöllinni. Fyrir leik sátu Káramenn í níunda sæti í deildinni með níu stig á meðan gestirnir úr Árbænum voru í 3. til 4. sæti með 17 stig ásamt Kormáki/Hvöt. Það var því ljóst að með…Lesa meira

true

Enn lokað yfir Ferjukotssíki

Enn er lokað fyrir umferð yfir Ferjukotssíki í Borgarfirði. Unnið hefur verið að uppsetningu bráðabirgðabrúar yfir síkið síðan í mars á þessu ári. Síkisbrýrnar voru tvær en styttri brúin skemmdist í miklum vatnavöxtum í Hvítá í mars. Hún var talin hættuleg og því var ákveðið að rífa hana og fylla í skarðið. Lengri brúin, á…Lesa meira

true

Skoðað sig um á Æðarsetrinu í Stykkishólmi

Æðarsetur Íslands var opnað í Norska húsinu í Stykkishólmi 13. júní árið 2011 af Frú Dorrit Moussaieff, verndara setursins. Æðarsetrið var starfrækt í Norska húsinu 2011 og 2012. Árið 2017 var Æðarsetrið opnað á ný í Stykkishólmi í glæsilegum húsakynnum sem sérstaklega voru hönnuð fyrir setrið við Frúarstíg 6. Í setrinu er hlunninda- og fræðslusýning þar…Lesa meira

true

Írskir dagar á Akranesi hefjast í dag

Bæjarhátíðin Írskir dagar hefjast í dag Akranesi og standa fram á sunnudagskvöld. Er þetta í 24. skiptið sem hátíðin er haldin og eins og venja er verður þétt dagskrá alla hátíðina og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Setning írskra daga hefst klukkan 14 á Akratorgi í dag þar sem Sylvía Erla…Lesa meira

true

Brautarmet slegin í karla- og kvennaflokki í Snæfellsjökulshlaupinu

Snæfellsjökulshlaupið var haldið í 13. sinn laugardaginn 24. júní sl. Í ár voru 182 keppendur og voru brautarmet slegin í bæði karla- og kvennaflokki. Hlaupaleiðin er 22 km löng. Ræst var hjá veitingastaðnum Arnarbæ á Arnarstapa, hlaupið yfir jökulhálsinn og endað í miðbæ Ólafsvíkur. Það eru Sigrún Ólafsdóttir og Ingunn Ýr Angantýsdóttir sem hafa umsjón…Lesa meira

true

Ólafsvíkurvaka haldin um helgina

Fjölskyldu- og bæjarhátíðin Ólafsvíkurvaka verður haldin í Ólafsvík um næstu helgi. Dagskráin hefst á morgun, fimmtudag, þar sem bæjarbúar hittast í sínum hverfum og skreyta. Á föstudaginn verður meðal annars krakka crossfit á sparkvellinum í hádeginu, íþróttaálfurinn verður í Sjómannagarðinum klukkan 16 og Silent Diskó í íþróttahúsinu fyrir tíu ára og eldri. Dorgveiðikeppni SjóSnæ verður…Lesa meira

true

Um 1700 börn kepptu á Norðurálsmótinu

Norðurálsmótið fór fram um liðna helgi í 38. sinn. Þar kepptu drengir og stúlkur í 7. og 8. flokki víðs vegar af landinu. Mótið var sett föstudaginn 23. júní með fjölmennri og litríkri skrúðgöngu frá Stillholti að Akraneshöll. Um 1700 keppendur voru skráðir til leiks þetta árið og var þetta í fyrsta sinn sem stúlkur…Lesa meira