Kristbjörg Hermannsdóttir við afgreiðsluborðið. Ljósm. vaks

Skoðað sig um á Æðarsetrinu í Stykkishólmi

Æðarsetur Íslands var opnað í Norska húsinu í Stykkishólmi 13. júní árið 2011 af Frú Dorrit Moussaieff, verndara setursins. Æðarsetrið var starfrækt í Norska húsinu 2011 og 2012. Árið 2017 var Æðarsetrið opnað á ný í Stykkishólmi í glæsilegum húsakynnum sem sérstaklega voru hönnuð fyrir setrið við Frúarstíg 6. Í setrinu er hlunninda- og fræðslusýning þar sem eldri vinnubrögð og áhöld eru sýnd sem notuð voru við hreinsun á æðardúni. Þá eru ljósmyndir og kvikmyndir um varp og dúntekju í gegnum tíðina til sýnis.