Kvöldvaka var haldin í Akraneshöllinni á laugardagskvöldið. Ljósm, ki

Um 1700 börn kepptu á Norðurálsmótinu

Norðurálsmótið fór fram um liðna helgi í 38. sinn. Þar kepptu drengir og stúlkur í 7. og 8. flokki víðs vegar af landinu. Mótið var sett föstudaginn 23. júní með fjölmennri og litríkri skrúðgöngu frá Stillholti að Akraneshöll. Um 1700 keppendur voru skráðir til leiks þetta árið og var þetta í fyrsta sinn sem stúlkur í 7. flokki taka þátt í mótinu. Akranes iðaði af lífi um helgina enda fjöldi fólks sem kom langt að og gisti á tjaldstæðum.

Um 1700 börn kepptu á Norðurálsmótinu - Skessuhorn