Frá írskum dögum í fyrra. Ljósm. ki

Írskir dagar á Akranesi hefjast í dag

Bæjarhátíðin Írskir dagar hefjast í dag Akranesi og standa fram á sunnudagskvöld. Er þetta í 24. skiptið sem hátíðin er haldin og eins og venja er verður þétt dagskrá alla hátíðina og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Setning írskra daga hefst klukkan 14 á Akratorgi í dag þar sem Sylvía Erla og Árni Beinteinn syngja nokkur lög, Grillveisla Húsasmiðjunnar er klukkan 16, söguganga með Kellingum hefst klukkan 17.30 frá Akratorgi og þá verður sundlaugarpartý á Jaðarsbökkum fyrir ungmenni klukkan 21.30.

Írskir dagar á Akranesi hefjast í dag - Skessuhorn