Fríður hópur við tökulok á fimmtudagskvöld við Jötnabrúarfoss í Lundarreykjadal. Ljósm. sþ

Tóku upp stuttmynd í Borgarfirði

Tökur á stuttmyndinni Anima fóru fram í Borgarfirði í síðustu viku en verkefnið er hugarfóstur Borgnesingsins Hönnu Ágústu Olgeirsdóttur sem framleiðir, semur og leikstýrir myndinni. Hanna Ágústa lærði leikstjórn samhliða klassískum söng í Þýskalandi og langaði þess vegna að skapa sér verkefni til að spreyta sig í faginu en stuttmyndin hlaut einn hæsta styrkinn á síðustu úthlutun Uppbyggingarsjóðs Vesturlands.

Tóku upp stuttmynd í Borgarfirði - Skessuhorn