Ingibjörg og Einar hafa síðustu ár unnið að endurbótum á húsinu sínu sem er gamla íbúðarhúsið í Rauðbarðaholti. Þá hafa þau byggt stóran pall við húsið, komið upp heitum potti og eru langt komin með byggingu gróðurhússins sem sjá má hér í bakgrunni.

„Við viljum taka þátt í að byggja upp samfélagið“

Ingibjörg Þóranna Steinudóttir flutti að Rauðbarðaholti í Hvamssveit fyrir um tveimur árum. Hún býr þar með manni sínum Einari Erlingssyni, sem uppalinn er í Rauðbarðaholti, og tveimur dætrum, þeim Auði og Freyju. Árið 2018 ákváðu Ingibjörg og Einar að kaupa gamla húsið á jörðinni, gera það upp og nota sem sumarhús en móðir Einars býr einnig á staðnum og er með sauðfjárbúskap. Þau áttuðu sig fljótt á því að þau vildu hvergi annars staðar vera og svo fór að vorið 2021 söðluðu þau um og fluttu búferlum úr Hafnarfirði í Rauðbarðaholt. Einar er smiður og starfar sem slíkur í Dölunum en Ingibjörg tók vinnuna með sér úr Reykjavík. Hún er verkfræðingur og starfar hjá hátæknifyrirtækinu Nox Medical sem framleiðir lækningatæki til að greina svefnsjúkdóma. Einn megintilgangur flutninganna segir Ingibjörg vera að hægja á, en hún hefur þó haft næg verkefni á sinni könnu. Tæpu ári eftir flutningana ákvað Ingibjörg að bjóða sig fram í sveitarstjórn. Hún fékk flest greidd atkvæði og hefur nú í eitt ár verið varaoddviti Dalabyggðar. Þá er hún formaður fræðslunefndar Dalabyggðar og er á leið í eigin rekstur en hún áformar að opna Ullarvinnslu heima í Rauðbarðaholti. Óhætt er að segja að Ingibjörg lætur sér ekki nægja að hugsa um hlutina heldur hrindir þeim í framkvæmd.

„Við viljum taka þátt í að byggja upp samfélagið“ - Skessuhorn