Fréttir

true

Heimsmet í flokki sex vetra stóðhesta

Axel Örn Ásbergsson frá Hraunholtum í Kolbeinsstaðahreppi sýndi stóðhestinn Guttorm frá Dallandi á Selfossi fyrir viku síðan. Tókst þeim félögum að slá heimsmet, en Guttormur er nú hæst dæmdi sex vetra stóðhesturinn í heiminum það sem af er ári. Guttormur er undan Spuna frá Vesturkoti og Grósku frá Dallandi en hann hlaut 8,44 í einkunn…Lesa meira

true

Stefnir í stutt en gjöfult strandveiðitímabil

Að óbreyttu munu strandveiðar stöðvast fyrr en nokkru sinni áður. Eina sem breytt gæti því er aukning veiðiheimilda sem matvælaráðherra einn getur gefið út. Þorskafli strandveiðibátanna eftir gærdaginn nemur 7.951 tonni en heildar kvótinn er 10 þúsund tonn. Ef ekki verður bætt við kvótann munu veiðar verða stöðvaðar um eða upp úr 10. júlí næstkomandi.…Lesa meira

true

Rósa heiðruð fyrir langa setu í bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar

Nýverið var Rósa Guðmundsdóttir fyrrverandi bæjarfulltrúi í Grundarfirði heiðruð fyrir 16 ára starf í bæjarstjórn Grundarfjarðar. Af því tilefni hittust bæjarfulltrúar og bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar ásamt formanni og framkvæmdastjóra SSV og þökkuðu Rósu fyrir afar farsæl störf að sveitarstjórnarmálum. Sú hefð hefur þróast á undanförnum árum að SSV heiðri sveitarstjórnarfólk sem hefur setið 16 ár eða…Lesa meira

true

Danskir dagar heppnuðust vel

Danskir dagar voru haldnir samhliða Landsmóti UMFÍ 50+ í Stykkishólmi um síðustu helgi. Fjölmargt fólk var í bænum og mikið um að vera. Viðburðir hátíðarinnar voru vel sóttir og veðrið lék við heimamenn og gesti stærri hluta helgarinnar. Þar sem mikið álag var á tjaldsvæðinu um helgina var afar kærkomið að fá rigningu á sunnudeginum…Lesa meira

true

Íþróttaakademía við Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Við Fjölbrautaskóla Snæfellinga verður framvegis starfrækt íþróttaakademía. Skrifað var undir samning þar að lútandi í gær. Undir samninginn skrifuðu Hjörleifur Kristinn Hjörleifsson f.h. Snæfells, Hjördís Pálsdóttir f.h. Körfuknattleiksdeildar Snæfells, Tinna Ýr Gunnarsdóttir f.h. Umf. Víkings/Reynis og Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Nemendur í FSN munu geta unnið sér inn námseiningar og samhliða því fengið markvissa…Lesa meira

true

Bílasala eykst á milli ára

Talsverð aukning hefur verið í bílasölu hér á landi en hún jókst milli ára um 6,3% á föstu verðlagi, en 20,6% á breytilegu verðlagi. Þetta kemur fram í nýrri smásöluvísitölu Rannsóknaseturs verslunarinnar (RSV). Þá er örlítil hækkun í matvöruverslunum milli ára eða 0,8% á föstu verðlagi en 13,4% á breytilegu verðlagi. RSV reiknar og birtir…Lesa meira

true

Skinkuhorn – Elín Elísabet Einarsdóttir

Vissi ekki að það væri raunhæft að starfa sem listamaður Borgnesingurinn Elín Elísabet Einarsdóttir er gestur Skinkuhornsins þessa vikuna. Hún starfar sem teiknari en í starfi sínu er hún málari, grafískur teiknari, hönnuður og margt fleira. Elín sinnir fjölbreyttum verkefnum og hefur frá ýmsu að segja í Skinkuhorni vikunnar, m.a. frá námi sínu við Myndlistaskólann…Lesa meira

true

Magnús B og Steinunn gefa upplýsingaskilti í Hvanneyrarkirkjugarð

Á undanförnum árum hefur verið unnið að endurbótum á legstaðaskrá Hvanneyrarkirkjugarðs. Nokkur leiði voru ekki skráð og eins vantaði nokkuð upplýsingar um fæðingardaga og ár og eins hvar  viðkomandi átti heima. Sóknarnefndin fékk Magnús B. Jónsson til að vinna að endurbótum að legstaðaskránni og lauk því verki síðastliðinn vetur. Þá eru óskráð legstæði nokkurra einstaklinga…Lesa meira

true

Landsmót 50+ í Stykkishólmi gekk mjög vel – MYNDASYRPA

Það var frábært veður á Landsmóti 50 ára og eldri sem haldið var í Stykkishólmi um helgina. Að sögn Gunnhildar Gunnarsdóttur framkvæmdastjóra HSH gekk framkvæmd mótsins frábærlega og hún segir að svona mót sé ekki haldið nema með öflugum sjálfboðaliðum sem skiluðu sínu mjög vel. Fjöldi þátttakenda var yfir meðallagi, voru um 320 en Gunnhildur…Lesa meira

true

Lokadagur í kofabyggðinni í Grundarfirði

Fyrir helgina lauk kofasmiðjunni í Grundarfirði en það hafði verið starfrækt síðustu tvær vikur. Kofasmiðjan var í umsjón Thors Kolbeinssonar en þár gátu krakkar fæddir 2011 til 2013 tekið til hendinni og smíðað kofa eða aðra smíðagripi. Síðasta daginn var uppskerunni fagnað og kveiktur varðeldur þar sem grillaðir voru sykurpúðar, pylsur og poppað yfir opnum…Lesa meira