Frá undirritun samningsins um Íþróttaakademíuna við FSN. F.v. Hjördís Pálsdóttir, Tinna Ýr Gunnarsdóttir, Hrafnhildur Hallvarðsdóttir og Hjörleifur Kristinn Hjörleifsson. Ljósm. aðsend.

Íþróttaakademía við Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Við Fjölbrautaskóla Snæfellinga verður framvegis starfrækt íþróttaakademía. Skrifað var undir samning þar að lútandi í gær. Undir samninginn skrifuðu Hjörleifur Kristinn Hjörleifsson f.h. Snæfells, Hjördís Pálsdóttir f.h. Körfuknattleiksdeildar Snæfells, Tinna Ýr Gunnarsdóttir f.h. Umf. Víkings/Reynis og Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga.

Íþróttaakademía við Fjölbrautaskóla Snæfellinga - Skessuhorn