Thor Kolbeinsson eða Toggi er hér að opna popppönnuna og Guðmundur Sigurðsson fylgist spenntur með. Ljósm. tfk.

Lokadagur í kofabyggðinni í Grundarfirði

Fyrir helgina lauk kofasmiðjunni í Grundarfirði en það hafði verið starfrækt síðustu tvær vikur. Kofasmiðjan var í umsjón Thors Kolbeinssonar en þár gátu krakkar fæddir 2011 til 2013 tekið til hendinni og smíðað kofa eða aðra smíðagripi. Síðasta daginn var uppskerunni fagnað og kveiktur varðeldur þar sem grillaðir voru sykurpúðar, pylsur og poppað yfir opnum eldi. Féll þetta vel í kramið hjá smíðasnillingunum.

Lokadagur í kofabyggðinni í Grundarfirði - Skessuhorn