Danskir dagar heppnuðust vel

Danskir dagar voru haldnir samhliða Landsmóti UMFÍ 50+ í Stykkishólmi um síðustu helgi. Fjölmargt fólk var í bænum og mikið um að vera. Viðburðir hátíðarinnar voru vel sóttir og veðrið lék við heimamenn og gesti stærri hluta helgarinnar. Þar sem mikið álag var á tjaldsvæðinu um helgina var afar kærkomið að fá rigningu á sunnudeginum til að vökva gras og annan gróður á svæðinu. Sumarliði Ágeirsson ljósmyndari Skessuhorns skemmti sér vel eins og aðrir um helgina og smellti af nokkrum myndum sem hér birtast.

Danskir dagar heppnuðust vel - Skessuhorn