Páll S Brynjarsson og Guðveig Eyglóardóttir færðu Rósu Guðmundsdóttur blóm. Ljósm. aðsend.

Rósa heiðruð fyrir langa setu í bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar

Nýverið var Rósa Guðmundsdóttir fyrrverandi bæjarfulltrúi í Grundarfirði heiðruð fyrir 16 ára starf í bæjarstjórn Grundarfjarðar. Af því tilefni hittust bæjarfulltrúar og bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar ásamt formanni og framkvæmdastjóra SSV og þökkuðu Rósu fyrir afar farsæl störf að sveitarstjórnarmálum. Sú hefð hefur þróast á undanförnum árum að SSV heiðri sveitarstjórnarfólk sem hefur setið 16 ár eða lengur í sveitarstjórnum.

Rósa heiðruð fyrir langa setu í bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar - Skessuhorn