
Magnús B og Steinunn gefa upplýsingaskilti í Hvanneyrarkirkjugarð
Á undanförnum árum hefur verið unnið að endurbótum á legstaðaskrá Hvanneyrarkirkjugarðs. Nokkur leiði voru ekki skráð og eins vantaði nokkuð upplýsingar um fæðingardaga og ár og eins hvar viðkomandi átti heima. Sóknarnefndin fékk Magnús B. Jónsson til að vinna að endurbótum að legstaðaskránni og lauk því verki síðastliðinn vetur. Þá eru óskráð legstæði nokkurra einstaklinga sem vitað er að hvíla í Hvanneyrarkirkjugarði en ekki er vitað hvar. Það var mikil vinna við að koma þessu í lag en Magnús var óþreytandi að afla gagna og er legstaðaskráin nú komin í gott horf.
Í framhaldi af vinnu Magnúsar var ákveðið að útbúa skilti til að setja upp í garðinum með korti af garðinum og upplýsingum um legstaði. Einnig var ákveðið að útbúa skilti með mynd af núverandi kirkju og eldri kirkju sem fauk 1902 en sú kirkja stóð á hólnum sunnan við kirkjugarðinn. Á því skilti skyldu einnig vera upplýsingar um báðar kirkjurnar bæði á íslensku og ensku.
Landlínur teiknuðu kort af garðinum og Sigurgeir Skúlason verkefnastjóri kirkjugarðaráðs setti það upp ásamt skrá yfir legstæði. Skiltagerðin Merking útbjó skiltin og Pj. Byggingar ehf. setti þau niður endurgjaldslaust.
Magnús B. Jónsson og Steinunn Ingólfsdóttir færðu Hvanneyrarkirkjugarði skiltin að gjöf þ.e. þau greiddu allan kostnað við gerð skiltanna.
Sóknarnefnd Hvanneyrarsóknar þakkar þessa myndarlegu gjöf og vonast til að þær upplýsingar sem þarna eru komi í góðar þarfir.
Guðmundur Sigurðsson skráði