Landsmót 50+ í Stykkishólmi gekk mjög vel – MYNDASYRPA

Það var frábært veður á Landsmóti 50 ára og eldri sem haldið var í Stykkishólmi um helgina. Að sögn Gunnhildar Gunnarsdóttur framkvæmdastjóra HSH gekk framkvæmd mótsins frábærlega og hún segir að svona mót sé ekki haldið nema með öflugum sjálfboðaliðum sem skiluðu sínu mjög vel. Fjöldi þátttakenda var yfir meðallagi, voru um 320 en Gunnhildur segir að það hefði verið meira gaman að fá meiri þátttöku í opnu greinar mótsins og vonandi tekst UMFÍ að efla það á komandi mótum. Að lokum segir hún að bæjarfélagið hafi staðið sig vel við framkvæmd mótsins og vill hún þakka öllum styrktaraðilum fyrir þeirra framlag til mótsins. Sumarliði Ágeirsson ljósmyndari var á svæðinu og tók myndir á mótinu um helgina.

Landsmót 50+ í Stykkishólmi gekk mjög vel - MYNDASYRPA - Skessuhorn