Fréttir

true

Úrslit kunngjörð í stærðfræðikeppni grunnskólanema

Síðastliðinn laugardag voru kynnt úrslit og fram fór verðlaunaafhending í stærðfræðikeppni grunnskóla á Vesturlandi. Sem fyrr var það Fjölbrautaskóli Vesturlands sem stóð fyrir keppninni en Norðurál veitti vegleg peningaverðalaun. Úrslit urðu þau að í áttunda bekk varð Daníel Guðjónsson í Grundaskóla á Akranesi efstur, Andri Ólafur Jónsson úr Grunnskólanum í Borgarnesi annar og bekkjarsystir hans…Lesa meira

true

Kári tapaði á móti Augnabliki

Kári og Augnablik léku á laugardaginn í 3. deild karla í knattspyrnu og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Gestirnir komust yfir á 37. mínútu þegar Tumi Fannar Gunnarsson fékk boltann í vítateignum, hann sólaði tvo leikmenn Kára og lagði boltann í markið framhjá markmanni Kára. Heimamenn reyndu hvað þeir gátu til að jafna metin en…Lesa meira

true

Strákar sérstaklega hvattir til að bíða ekki með háskólanám

Ný könnun á meðal framhaldsskólanema, sem gerð var af Rannsóknum og greiningu fyrir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið, leiðir í ljós umtalsverðan kynjamun á áformum stelpna og stráka þegar kemur að innritun í háskóla í haust. Könnunin var gerð í 13 framhaldsskólum á meðal þeirra nemenda sem stefna á útskrift í vor. Athygli vekur að aðeins…Lesa meira

true

Skagamenn byrjuðu Lengjudeildina með tapi

ÍA og Grindavík áttust við í 1. umferð Lengjudeildar karla á föstudaginn og fór leikurinn fram á Akranesvelli. Gestirnir komust yfir strax á fjórðu mínútu eftir sofandahátt í varnarleik heimamanna þegar hár bolti skoppaði inn fyrir vörn ÍA þar sem sóknarmaðurinn Dagur Ingi Hammer Gunnarsson var mættur og náði að skalla boltann. Árni Marinó Einarsson…Lesa meira

true

Telja hvalveiðar ekki samræmast markmiðum um velferð dýra

Matvælastofnun (MAST) hefur tekið saman skýrslu vegna eftirlits við veiðar á langreyðum við Ísland á síðasta sumri. Veiðar á langreyðum hófust á ný í júní og veiddust 148 hvalir á veiðitímabilinu. „MAST telur sérstaka ástæðu til að farið verði ítarlega yfir öll gögn og í kjölfarið metið hvort veiðar á stórhvelum geti uppfyllt markmið laga…Lesa meira

true

Skoða möguleika á opinberum stuðningi

Fyrr í vor leit út fyrir að Dalabyggð myndi taka í notkun nýja íþróttamiðstöð í Búðardal árið 2024. Segir Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri að það sé nú úr myndinni en enn sé stefnt að því að íþróttamiðstöðin verði klár og tekin í notkun árið 2025. Það er Eykt ehf. sem sjá mun um bygginguna. Dalabyggð…Lesa meira

true

Aukin fjárveiting til varnargirðinga

Vegna nýlegra riðutilfella á Norðurlandi vestra og umræðu um takmarkað viðhald á varnarlínum hefur Matvælastofnun farið þess á leit við matvælaráðuneytið að auknu fé verði varið til viðhalds varnarlína milli Miðfjarðarhólfs og Vesturlandshólfs. „Var það auðsótt og fékkst aukafjárveiting til viðhalds á Hvammsfjarðar- og Tvídægrulínu, samtals 4,5 milljónir króna, til viðbótar því fé sem þegar…Lesa meira

true

Björn Axel með þrennu fyrir Víking í fyrsta leik

Víkingur Ólafsvík og Dalvík/Reynir mættust í fyrstu umferð 2. deildar karla í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn á Ólafsvíkurvelli. Eina mark fyrri hálfleiks kom á 36. mínútu þegar Björn Axel Guðjónsson kom heimamönnum yfir í leiknum og þannig var staðan í hálfleik. Sjö mínútum eftir hálfleikshléið var Björn Axel aftur á ferðinni og kom…Lesa meira

true

Skúli á Simba sigurvegari í Sindratorfærunni

Sindratorfæran fór fram á Hellu síðastliðinn laugardag og voru 23 keppendur skráðir til leiks. Framan af leiddi Íslandsmeistarinn Haukur Viðar Einarsson á Heklu en eftir að bilanir fóru að segja til sín þá komst Skúli Kristjánsson á Simba fljótt upp í fyrsta sætið og hélt því út keppnina og endaði því sem sigurvegari. Geir Evert…Lesa meira