Íþróttir
Fleytt á vatni. Ljósm. aðsend.

Skúli á Simba sigurvegari í Sindratorfærunni

Sindratorfæran fór fram á Hellu síðastliðinn laugardag og voru 23 keppendur skráðir til leiks. Framan af leiddi Íslandsmeistarinn Haukur Viðar Einarsson á Heklu en eftir að bilanir fóru að segja til sín þá komst Skúli Kristjánsson á Simba fljótt upp í fyrsta sætið og hélt því út keppnina og endaði því sem sigurvegari. Geir Evert Grímsson á Sleggjunni kom rétt á eftir Skúla og gat í síðustu braut skotið sér á toppinn, en eftir að hafa ekið yfir tvær stikur í mýrinni og fengið 60 refsistig sigraði Skúli með 51 stigi. Í þriðja sæti, átta stigum á eftir Geir, kom Ingvar Jóhannesson á Víkingnum en hann keyrði öruggt í gegnum allar brautir sem skilaði honum frábærum árangri. Fyrrum Íslandsmeistari Snorri Þór Árnason á Kórdrengnum náði fjórða sæti en hann var að klifra upp stigatöfluna alla keppnina eftir mistök í fyrstu braut þar sem hann fékk fá stig miðað við keppinautana, frábært akstur hjá honum.

Skúli á Simba sigurvegari í Sindratorfærunni - Skessuhorn