Fréttir

true

Duftker úr pappa nú fáanleg

Aska Bio Urns er nýtt fyrirtæki sem hefur hafið framleiðslu og sölu á vistvænum, niðurbrjótanlegum duftkerum úr endurunnum pappír. „Þau duftker sem hafa verið í boði hingað til hafa flest verið frekar einsleit en með aukningu bálfara þá hefur opnast möguleiki á að auka úrvalið og um leið vera í takti við endurvinnsluhagkerfið og þá…Lesa meira

true

Héldu flugslysaæfingu á Bíldudal

Regluleg flugslysaæfing var haldin á Bíldudalsflugvelli sl. laugardagsmorgun. Það er Isavia sem heldur slíkar æfingar reglulega um land allt og er markmiðið að viðhalda og skerpa á viðbragði ef á þarf að halda og því taka allir viðbragðsaðilar á viðkomandi svæðum þátt. Viðbragðsaðilar komu frá björgunarsveitum, slökkviliði, sjúkraflutningum, lögreglu, Rauða krossinum, heilbrigðiskerfinu og Isavia. Fjöldi…Lesa meira

true

Framkvæmdir víða í Grundarfirði – Myndasyrpa

Það er mikið um að vera í Grundarfirði þessi misserin og enginn iðnaðarmaður sem situr með tærnar upp í loft. Verið er að taka grunna, steypa sökkla, klæða þök og margt fleira. Fréttaritari Skessuhorns lét flygildi á loft á dögunum og tók nokkrar yfirlitsmyndir fyrir framkvæmdir í bænum.Lesa meira

true

Reiðhöll á Æðarodda vígð og tekin í notkun

Ný reiðhöll á Æðarodda við Akranes var vígð í dag 1. maí, á 76 ára afmæli hestamannafélagsins Dreyra. Höllin er hin glæsilegasta í alla staði og mun án efa gjörbreyta aðstöðu hestamanna til þjálfunar og keppnishalds í framtíðinni. Sjálft húsið er límtréshús, 1.250 fermetrar að grunnfleti; 25 metra breitt og 50 metra langt og stendur…Lesa meira

true

Lagerhreinsun Hans og Grétu er í Jónsbúð

Lagerhreinsun verslunarinnar Hans og Grétu á Akranesi hófst í dag 1. maí í Jónsbúð og er opið til klukkan 18 í dag. Einnig verður opið þriðjudag og miðvikudag frá kl. 13 – 18. „Hellingur til af vörum á góðu verði á alla fjölskylduna. Okkur þætti voða vænt um það ef þið mynduð bjóða inn a…Lesa meira

true

Baráttukveðjur á degi verkalýðsins

Í dag er 1. maí – baráttudagur verka- og launafólks. Kröfugöngur, fundir, skemmtun og veitingar eru á meðal dagskrárliða verkalýðsfélaganna víðsvegar um landshlutann. Fólk er hvatt til þátttöku. Skessuhorn óskar öllum til hamingju með daginn.Lesa meira

true

Telja enn hættu á að farfuglar beri hingað fuglaflensu

Matvælastofnun telur að fuglaflensa hafi líklega ekki viðhaldist í íslenskum staðfuglum í vetur. Stofnunin hefur þess vegna lækkað viðbúnaðarstig úr stigi þrjú í stig tvö. Enn er þó talin töluverð hætta á að skæðar fuglaflensuveirur berist með farfuglum til landsins. Þess vegna gilda áfram hertar sóttvarnaráðstafanir sem m.a. fela í sér að alifuglar og aðrir…Lesa meira

true

Lögfræðingar styrkja stöðu sína á þingi

Síðastliðinn föstudag kvaddi Haraldur Benediktsson alþingismaður vinnustað sinn á Alþingi við Austurvöll, eftir rétta tíu ára veru þar. Hann mun nú á morgun 1. maí taka við starfi bæjarstjóra á Akranesi og verður eitt hans fyrsta embættisverk að vígja nýja reiðhöll á Æðarodda. Páll Magnússon, fyrrum stallbróðir Haraldar á þingi og þar áður útvarpsstjóri, fer…Lesa meira

true

Héldu samstöðufund fyrir upphaf strandveiða

Síðdegis á föstudaginn var boðað til óformlegs samstöðufundar á fiskmarkaðinum við Akraneshöfn með þeim sjómönnum sem hyggjast stunda strandveiðar frá Akranesi í sumar. „Á fundinn var boðið smábátasjómönnum en einnig fulltrúum Fiskistofu, Faxaflóahafna, MAST, Heilbrigðiseftirlits Vesturlands og Hafró. Athygli vakti að fulltrúar allra þessara stofnana sáu sér ekki fært að koma,“ sagði Böðvar Ingvason sem…Lesa meira

true

Ný og óþekkt tegund af æti úr þorskmaga

Steindór Oliversson sjómaður á Akranesi var nýverið í veiðiferð. Úr maga þorska sem hann hafði náð um borð vall þá sjávarlíffvera sem Steindór kannast ekki við að hafa séð áður koma úr fiskmaga, en hann á þó langan sjómannsferil að baki. Um einhvers konar snigil eða botnlífveru er að ræða. Steindór tók nokkur sýnishorn í…Lesa meira