Rauðbrystingar tanka sig upp hér á landi og nota svæðin við Faxaflóa og Breiðafjörð sem „bensínstöð“ á leið sinni milli varpstöðva á Grænlandi og Kanada og vetrarstöðva í Vestur-Evrópu og Vestur-Afríku. Ljósm. Fuglavernd.is/ Jóhann Óli Hilmarsson

Telja enn hættu á að farfuglar beri hingað fuglaflensu

Matvælastofnun telur að fuglaflensa hafi líklega ekki viðhaldist í íslenskum staðfuglum í vetur. Stofnunin hefur þess vegna lækkað viðbúnaðarstig úr stigi þrjú í stig tvö. Enn er þó talin töluverð hætta á að skæðar fuglaflensuveirur berist með farfuglum til landsins. Þess vegna gilda áfram hertar sóttvarnaráðstafanir sem m.a. fela í sér að alifuglar og aðrir fuglar í haldi skulu hafðir innanhúss eða í lokuðum gerðum undir þaki.

Telja enn hættu á að farfuglar beri hingað fuglaflensu - Skessuhorn