Reiðhöllin á Æðarodda er 1.250 fermetrar og hin vandaðasta bygging. Ljósmyndir/mm

Reiðhöll á Æðarodda vígð og tekin í notkun

Ný reiðhöll á Æðarodda við Akranes var vígð í dag 1. maí, á 76 ára afmæli hestamannafélagsins Dreyra. Höllin er hin glæsilegasta í alla staði og mun án efa gjörbreyta aðstöðu hestamanna til þjálfunar og keppnishalds í framtíðinni. Sjálft húsið er límtréshús, 1.250 fermetrar að grunnfleti; 25 metra breitt og 50 metra langt og stendur næst aðkomuleiðinni inn á Æðarodda. Það er Fasteignafélag Akraneskaupstaðar sem er formlegur eigandi hússins en gerður var langtímasamningur um reksturinn við Dreyra, en starfssvæði félagsins er Akranes og Hvalfjarðarsveit. Það er sambærilegt rekstrarform og milli Akraneskaupstaðar og Golfklúbbsins Leynis um Frístundamiðstöðina við Garðavöll.

Reiðhöll á Æðarodda vígð og tekin í notkun - Skessuhorn