
Ágætlega var mætt á samstöðufund sjómanna á Akranesi. Ljósm. mm
Héldu samstöðufund fyrir upphaf strandveiða
Síðdegis á föstudaginn var boðað til óformlegs samstöðufundar á fiskmarkaðinum við Akraneshöfn með þeim sjómönnum sem hyggjast stunda strandveiðar frá Akranesi í sumar. „Á fundinn var boðið smábátasjómönnum en einnig fulltrúum Fiskistofu, Faxaflóahafna, MAST, Heilbrigðiseftirlits Vesturlands og Hafró. Athygli vakti að fulltrúar allra þessara stofnana sáu sér ekki fært að koma,“ sagði Böðvar Ingvason sem stóð að boðun fundarins og stýrði honum. Á fundinum var m.a. farið yfir verklagsreglur um meðhöndlun afla, leyfismál og sitthvað fleira sem snýr að sjómönnum við upphaf sumarvertíðar.