
Ekki er langt síðan lóðin við Ölkelduveg 23 stóð auð en nú er komið hið reisulegasta hús á henni. Ljósmyndir: tfk.
Framkvæmdir víða í Grundarfirði – Myndasyrpa
Það er mikið um að vera í Grundarfirði þessi misserin og enginn iðnaðarmaður sem situr með tærnar upp í loft. Verið er að taka grunna, steypa sökkla, klæða þök og margt fleira. Fréttaritari Skessuhorns lét flygildi á loft á dögunum og tók nokkrar yfirlitsmyndir fyrir framkvæmdir í bænum.