Duftker úr pappa nú fáanleg

Aska Bio Urns er nýtt fyrirtæki sem hefur hafið framleiðslu og sölu á vistvænum, niðurbrjótanlegum duftkerum úr endurunnum pappír. „Þau duftker sem hafa verið í boði hingað til hafa flest verið frekar einsleit en með aukningu bálfara þá hefur opnast möguleiki á að auka úrvalið og um leið vera í takti við endurvinnsluhagkerfið og þá staðreynd að mikið magn af pappír fellur til. Þetta skapar rými fyrir duftker sem talar til vaxanda krafna um endurunnar vörur sem hafa vistvæn áhrif á umhverfið,“ segir í tilkynningu.

Duftker úr pappa nú fáanleg - Skessuhorn