
Vorsýning Fimleikafélags Akraness var í gær í fimleikahúsinu við Vesturgötu. Boðið var upp á tvær sýningar og var húsfyllir á þeim báðum. Þar sýndu iðkendur og þjálfarar þeirra afrakstur þrotlausra æfinga í vetur. Þema sýninganna var gömlu ævintýrin og mátti sjá fjölmargar persónur úr sögum H.C Andersen, Grimms bræðra, Astrid Lindgren og fleiri bregða fyrir.…Lesa meira








