Fréttir

true

Skagakonur með bikar í hús

ÍA og Völsungur frá Húsavík mættust í gær í úrslitum Lengjubikars kvenna í knattspyrnu í C deild og fór leikurinn fram á Sauðárkróki. Leikurinn byrjaði með látum því eftir aðeins fjórar mínútur kom Ylfa Laxdal Unnarsdóttir ÍA yfir í leiknum. Eftir rúmlega hálftíma leik jafnaði Krista Eik Harðardóttir metin fyrir Völsung en Unnur Ýr Haraldsdóttir…Lesa meira

true

Skýrist í dag hvort Sjálfstæðisflokkur og Samfylking hefji meirihlutaviðræður

Síðastliðinn mánudag var handsalað samkomulag oddvita Samfylkingar og Framsóknar með frjálsum á Akranesi þess efnis að flokkarnir létu reyna á myndun meirihluta í bæjarstjórn líkt og á síðasta kjörtímabili. Viðræður milli flokkanna hófust því í vikunni, en var slitið í gær af Samfylkingunni, sem tilkynnti Framsókn í tölvupósti að ekki væri flötur á meirihlutasamstarfi. Valgarður…Lesa meira

true

Staða fuglaflensu hér á landi

Matvælastofnun minnir á mikilvægi þess að fólk tilkynni til stofnunarinnar um dauða villta fugla. Fuglaflensa hefur greinst í 19 sýnum af 76 sem rannsökuð hafa verið. Reglur um tímabundnar varnaraðgerðir eru enn í gildi en vonir standa til að þeim megi fljótlega aflétta að öllu óbreyttu. „Mikilvægt er að fólk tilkynni um dauða villta fugla…Lesa meira

true

Styrkir til að aðlaga ræktun að lífrænni framleiðslu

Matvælaráðuneytið vekur athygli á að umsóknarfrestur vegna styrkja til aðlögunar að lífrænum framleiðsluháttum í landbúnaði hefur verið framlengdur til 3. júní næstkomandi. Framleiðendur sem hafa byrjað lífræna aðlögun í samræmi við gildandi reglugerð um lífræna framleiðslu landbúnaðarafurða og merkingar geta sótt um. Lífræna aðlögunin skal vera undir eftirliti faggildu löggildingarstofunnar Túns. Sækja ber sérstaklega um styrki…Lesa meira

true

Borgfirðingar bjóða Úkraínufólki í kaffi

Á morgun, laugardaginn 21. maí, verður viðburður á Bifröst þar sem færi gefst á að hitta flóttafólkið frá Úkraínu sem kom til landsins í síðasta mánuði og hefur verið að koma sér fyrir á Bifröst í kjölfar stríðsátakanna í heimalandi þess. Markmið með viðburðinum er að fólk sem býr í nærsveitum, og aðrir sem vilja,…Lesa meira

true

Búkolla lokuð um tíma

Fram kemur í tilkynningu frá Akraneskaupstað að vegna ófullnægjandi húsnæðisaðstæðna verði lokað í Búkollu á Akranesi um óákveðinn tíma. Meðan það ástand varir verða fatagámar staðsettir við Fjöliðjuna að Smiðjuvöllum 9 en nytjagámar verða áfram staðsettir á gámasvæði Terra við Höfðasel.Lesa meira

true

Fengu listaverk að gjöf

Fyrr í mánuðinum fékk Listasafn Borgarness listaverkagjöf frá Íslandsbanka. Um er að ræða listaverkin Við Breiðafjörð eftir Svein Þórarinsson og verk eftir Ásgrím Jónsson. Íslandsbanki ákvað árið 2021 að gefa listaverkasafn bankans sem telur 203 listaverk til Listasafns Íslands og annarra viðurkenndra safna. Fram kemur á heimasíðu Borgarbyggðar að mikið af þessum listaverkum sem um…Lesa meira

true

Markmiðið að vera Skallagrími til sóma

Skallagrímur leikur í fjórðu deildinni í fótbolta þriðja árið í röð í sumar en liðið féll úr þeirri þriðju árið 2019. Liðið endaði í fimmta sæti í B riðli fjórðu deildar í fyrra, vann fjóra leiki, gerði þrjú jafntefli og tapaði sjö. Sölvi G. Gylfason er þjálfari liðsins eins og síðastliðin tvö ár og við…Lesa meira

true

Takmarkið að reyna að bæta okkur sem lið

Reynir Hellissandi leikur í A riðli 4. deildar í sumar en í fyrra tók liðið þátt í fyrsta skipti á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Þar endaði Reynir í sjötta sæti í C riðli með tólf stig í 16 leikjum, vann þrjá leiki, gerði þrjú jafntefli og tapaði tíu. Brynjar Kristmundsson tók við af Kára Viðarssyni sem…Lesa meira

true

Lagfæra bekki í minningarjóðri í Skallagrímsgarði

Í rjóðri í Skallagrímsgarði í Borgarnesi stendur minnismerki um Friðrik Þorvaldsson sem reist var árið 1996. Friðrik var frumkvöðull sem vann að ýmsum framfaramálum meðan hann bjó í Borgarnesi og var hann meðal annars öflugur hvatamaður að stofnun Skallagrímsgarðs. Fram kemur á heimasíðu Borgarbyggðar að auk minnismerkisins hafa afkomendur Friðriks og Helgu Guðrúnar Ólafsdóttur konu…Lesa meira