Skýrist í dag hvort Sjálfstæðisflokkur og Samfylking hefji meirihlutaviðræður

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Síðastliðinn mánudag var handsalað samkomulag oddvita Samfylkingar og Framsóknar með frjálsum á Akranesi þess efnis að flokkarnir létu reyna á myndun meirihluta í bæjarstjórn líkt og á síðasta kjörtímabili. Viðræður milli flokkanna hófust því í vikunni, en var slitið í gær af Samfylkingunni, sem tilkynnti Framsókn í tölvupósti að ekki væri flötur á meirihlutasamstarfi. Valgarður Lyngdal Jónsson oddviti Samfylkingar staðfestir þetta við Skessuhorn og segir ástæðuna þá að Framsókn hafi strax í upphafi viðræðna sett fram afarkosti sem Samfylking taldi sig ekki geta gengið að. Ragnar Sæmundsson oddviti Framsóknar og frjálsra staðfestir einnig í samtali við Skessuhorn að flokkur hans hafi í ljósi kjörfylgis sett fram kröfu um aukið vægi í bæjarstjórn miðað við síðasta kjörtímabil, meðal annars um að fá formann bæjarráðs. Valgarður segir að í ljósi þess að flokkur hans hafi ekki viljað verða við kröfu Framóknar hafi verið ákveðið að leita til Sjálfstæðisflokks um að taka upp meirihlutaviðræður. Valgarður segir að það muni skýrast síðdegis í dag hvort flokkarnir nái saman um að hefja formlegar viðræður um myndun meirihluta.\r\n\r\nAllir flokkarnir á Akranesi fengu þrjá fulltrúa í bæjarstjórn í kosningunum síðastliðinn laugardag. Framsókn með frjálsum bætti við sig fylgi og fékk sinn þriðja fulltrúa í bæjarstjórn á kostnað Sjálfstæðisflokksins.",
  "innerBlocks": []
}
Skýrist í dag hvort Sjálfstæðisflokkur og Samfylking hefji meirihlutaviðræður - Skessuhorn