Styrkir til að aðlaga ræktun að lífrænni framleiðslu
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Matvælaráðuneytið vekur athygli á að umsóknarfrestur vegna styrkja til aðlögunar að lífrænum framleiðsluháttum í landbúnaði hefur verið framlengdur til 3. júní næstkomandi. Framleiðendur sem hafa byrjað lífræna aðlögun í samræmi við gildandi reglugerð um lífræna framleiðslu landbúnaðarafurða og merkingar geta sótt um. Lífræna aðlögunin skal vera undir eftirliti faggildu löggildingarstofunnar Túns.\r\n\r\nSækja ber sérstaklega um styrki í garðyrkju skv. ákvæðum reglugerðar um stuðning við garðyrkju nr. 1273/2020. Í öðrum landbúnaði er sótt um styrki samkvæmt ákvæðum reglugerðar um almennan stuðning við landbúnað nr. 430/2021.\r\n\r\nUmsóknarfrestur er til miðnættis 3. júní <a href=\"https://afurd.bondi.is/\">(www.afurd.is)</a>. Á Afurð má einnig finna upplýsingar um nauðsynleg fylgiskjöl með umsókn.",
"innerBlocks": []
}
Styrkir til að aðlaga ræktun að lífrænni framleiðslu - Skessuhorn