Fréttir

true

Perlað verður af krafti næstu daga fyrir Kraft

Í dag hófst fjáröflunar- og árvekniátak Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Markmið átaksins er að selja ný „Lífið er núna“ armbönd, fá fólk til að koma saman og sýna samstöðu með því að perla armbönd og sýna almenningi inn í reynsluheim félagsmanna Krafts og þeim áskorunum sem verða…Lesa meira

true

2500 ungmenni án verkefna á síðasta ári

Árið 2021 er áætlað að 6,3% ungs fólks á aldrinum 16-24 ára hafi ekki verið í vinnu, námi eða starfsþjálfun. Þetta hlutfall jafngildir því að þetta hafi átt við ríflega 2.500 ungmenni það árið. Á síðustu tíu árum var hlutfallið lægst 4,9% árið 2017 en hæst 7,4% árið 2020. Þetta kemur fram í tilkynningu frá…Lesa meira

true

Nýjar leiðir í skólastarfi

Menntaskóli Borgarfjarðar í Borgarnesi hóf göngu sína haustið 2007 og var þá nokkurs konar tilraunaskóli. Námsbrautir voru til þriggja ára sem þá var nýnæmi, kennslan var tæknivædd og allir nemendur fengu fartölvur, svo nokkuð sé nefnt. Fimmtán árum síðar er skólinn ennþá farvegur nýrra leiða í skólastarfi og þar verður nú ráðist í grundvallarbreytingar. Blaðamaður…Lesa meira

true

Þjónustuvefur sýslumanna kominn í loftið

Nýr þjónustuvefur sýslumannsembætta hefur verið tekinn í gagnið þar sem notendur geta fengið svör við helstu spurningum er varða verkefni sýslumanna. Þessi nýjung er hluti af stafrænni vegferð í opinberri þjónustu. Þjónustuvefurinn eykur möguleika viðskiptavina á sjálfsafgreiðslu og sparar þar með sporin fyrir þá og eykur skilvirkni í starfseminni. Á þjónustuvefnum verður boðið upp á…Lesa meira

true

„Vinnum eftir áætlun sem við erum mjög ánægð með“

Í mars árið 2021 var haldinn kynningarfundur um skýrslu Verkís um úttekt á húsnæði Grundaskóla á Akranesi en hún var unnin vegna grunsemda um ónóg loftgæði í skólanum. Helstu niðurstöður úttektarinnar voru að rakaskemmdir höfðu fundist í húsnæði skólans og sumstaðar höfðu þær leitt til myglu. Þá var gömul glerull ásamt ágöllum á rakavarnarlagi stór…Lesa meira

true

Skipuleggja þéttingu byggðar í Borgarnesi

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum 12. maí síðastliðinn tillögu til auglýsingar vegna deiliskipulags við Dílatanga og nærsvæði í Borgarnesi. Tillagan er unnin af Einari Ingimarssyni arkitekt og nær yfir göturnar Dílahæð, Þórðargötu, Kveldúlfsgötu, Ánahlíð og hluta Borgarbrautar. Svæðið er að mestu íbúðahverfi þar sem eru fyrir 134 íbúðum. Við Kveldúlfsgötu er gert ráð fyrir…Lesa meira

true

Vel gengur í málun gangbrauta á Akranesi

Síðasta sumar var mjög áberandi um miðjan maí hvað gangbrautamerkingar voru lítt sýnilegar á helstu umferðargötum á Akranesi og í raun oft erfitt að sjá að um gangbrautir væri að ræða. Það var svo ekki fyrr en um miðjan júlí að málun gangbrauta var komin vel á veg en oftast er það yfirleitt það fyrsta…Lesa meira

true

ÍA fékk KR í Mjólkurbikarnum

Dregið var í hádeginu í dag í 16-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu. Skagakonur sem leika í 2. deild voru í pottinum og fengu heimaleik gegn KR sem vermir botnsætið í Bestu deild kvenna. Hin liðin sem drógust saman eru eftirfarandi: Tindastóll-Valur, Selfoss-Afturelding, ÍH/FH-Stjarnan, Þór/KA-Augnablik/Haukar, Þróttur R.-Víkingur R, Keflavík-ÍBV og Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir-Breiðablik. 16-liða úrslitin fara fram…Lesa meira

true

Sundfólk frá Akranesi tók þátt í sundmóti í Keflavík

Landsbankamót Íþróttabandalags Reykjanesbæjar (ÍRB) fór fram í Keflavík um liðna helgi og tóku þar þátt 29 einstaklingar á vegum Sundfélags Akraness. Tóku þar meðal annars þátt 8 ára sundmenn sem stungu sér til sunds í fyrsta skipti á móti. Einnig var keppt í flokkum 12 ára og yngri, 13 ára og eldri og 15-17 ára.…Lesa meira

true

Samningur við Víðsjá um verkfræðihönnun í Grundaskóla

Undir lok apríl var undirritaður samningur milli Akraneskaupstaðar og Víðsjár verkfræðistofu um verkfræðihönnun vegna endurbóta og viðbygginga C álmu Grundaskóla á Akranesi. Álman er um 2.350 fermetrar og áætlaðar viðbyggingar verða um 400 fermetrar. Anddyri til norðurs og suðurs verða stækkuð og nýju anddyri bætt við til vesturs og byggt verður yfir þriðju hæð hússins.…Lesa meira