Vanda Sig fylgist með drættinum. Ljósm. af ksi.is

ÍA fékk KR í Mjólkurbikarnum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Dregið var í hádeginu í dag í 16-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu. Skagakonur sem leika í 2. deild voru í pottinum og fengu heimaleik gegn KR sem vermir botnsætið í Bestu deild kvenna. Hin liðin sem drógust saman eru eftirfarandi: Tindastóll-Valur, Selfoss-Afturelding, ÍH/FH-Stjarnan, Þór/KA-Augnablik/Haukar, Þróttur R.-Víkingur R, Keflavík-ÍBV og Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir-Breiðablik.\r\n\r\n16-liða úrslitin fara fram dagana 27. til 29. maí næstkomandi en liðin í Bestu deild kvenna komu nú inn í keppnina ásamt þeim sex liðum sem unnu sína leiki í 2. umferð. Leikur ÍA og KR verður laugardaginn 28. maí á Akranesvelli og hefst klukkan 13.",
  "innerBlocks": []
}
ÍA fékk KR í Mjólkurbikarnum - Skessuhorn