Nýmáluð gangbraut við Dalbraut. Ljósm. vaks

Vel gengur í málun gangbrauta á Akranesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Síðasta sumar var mjög áberandi um miðjan maí hvað gangbrautamerkingar voru lítt sýnilegar á helstu umferðargötum á Akranesi og í raun oft erfitt að sjá að um gangbrautir væri að ræða. Það var svo ekki fyrr en um miðjan júlí að málun gangbrauta var komin vel á veg en oftast er það yfirleitt það fyrsta af vorverkum sumarsins hjá bænum.\r\n\r\nÍ ár er staðan öll önnur og betri og bæjarbúar örugglega tekið eftir því síðustu vikur að vel hefur gengið í málun gangbrauta og því ber að hrósa bæjaryfirvöldum fyrir vel unnin störf í þessum málum þetta sumarið. Þetta er mikið öryggismál fyrir íbúa bæjarins og ástæða til að minna ökumenn á að hægja á sér þegar þeir nálgast gangbrautir og hraðahindranir og aka ætíð á löglegum hraða því öll viljum við komast á leiðarenda heil á húfi.",
  "innerBlocks": []
}