Starfsfólk frá Akraneskaupstað og Víðsjá eftir undirskriftina. Ljósm. akranes.is

Samningur við Víðsjá um verkfræðihönnun í Grundaskóla

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Undir lok apríl var undirritaður samningur milli Akraneskaupstaðar og Víðsjár verkfræðistofu um verkfræðihönnun vegna endurbóta og viðbygginga C álmu Grundaskóla á Akranesi. Álman er um 2.350 fermetrar og áætlaðar viðbyggingar verða um 400 fermetrar. Anddyri til norðurs og suðurs verða stækkuð og nýju anddyri bætt við til vesturs og byggt verður yfir þriðju hæð hússins. Endurbætur miða að því að aðlaga húsnæðið að þeim kröfum sem gerðar eru til skólahúsnæðis í dag. Jafnframt mun kennarastofa skólans verða flutt í C álmu sem skapar rými fyrir kennslustofur í E álmu skólans þar sem kennarastofur eru í dag.\r\n\r\nFram kemur á heimasíðu Akraneskaupstaðar að eitt tilboð hafi borist í verkið frá Víðsjá verkfræðistofu sem hljóðaði upp á rúmlega 44 milljónir króna. Til stendur að bjóða verkframkvæmdina út í lok þessa árs og að heildarverklok verði haustið 2024.",
  "innerBlocks": []
}
Samningur við Víðsjá um verkfræðihönnun í Grundaskóla - Skessuhorn